Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. ágúst næstkomandi. Halldóra hefur starfað hjá Grindavíkurbæ frá árinu 2012 og unnið að margvíslegum breytingum og þróunarstarfi innan grunnskólans og verið þar í lykilhlutverki. Ástæðan fyrir starfslokum hennar á þessum tímapunkti er að Halldóra öðlast rétt til töku lífeyris á skólaárinu.
Fræðslunefnd tók málið fyrir á fundi sínum í gær og samþykkti auglýsinga- og ráðningarferli til að ráða nýjan stjórnanda við skólann en með tímanlegri uppsögn skólastjóra er meira svigrúm en ella til verksins.