Við boðum til málþings um skipulagt félagsstarf í skólanum og Þrumunni. Málþingið verður með 9, og 10. bekkjum kl. 8:00 - 9;29 þriðjudaginn 28. febrúar (sprengidag) og 7. og 8. bekkjum kl. 8:00 - 9:20 föstudaginn 3.mars. Þátttakendur í málþinginu eru allir nemendur þessara bekkja ásamt foreldrum og starfsmönnum sem áhuga hafa á þátttöku.
Málþingið er haldið í samstarfi við frístunda- og menningarsvið, Björg Erlingsdóttir verður málþingsstjóri og þau Jóhann Árni frístundaleiðbeinandi og Petrína deildarstjóri hafa aðstoðað nemendur við undirbúning málþingsins. Okkur finnst mikilvægt að fá breiða sýn á viðfangsefnið og hvetjum foreldra sem eiga börn í þessum árgöngum og eiga þess kost, að taka þátt í þinginu með okkur.