Lestrarhestar athugið! Næstkomandi sunnudag er síðasti keppnisdagur í lestrarlandsleiknum Allir lesa. Nemendur, starfsmenn og foreldrar í Grunnskóla Grindavíkur standa mjög vel að vígi í keppninni, allir bekkir eru með lið og eru mörg þeirra ofarlega þrátt fyrir að margir séu ekki búnir að færa inn allan sinn lestur.
Þegar þetta er skrifað eru starfsmenn Grunnskóla Grindavíkur í 7. sæti í flokki vinnustaða með 10-29 manna lið. Það er líka mikil keppni meðal liðsmannanna innbyrðis og er Anný María Lárusdóttir í augnablikinu efst með rúmlega 3000 mínútur lesnar, enda notar hún hverja lausa stund til að lesa eins og sést á meðfylgjandi mynd. :-) En spyrjum að leikslokum.
Viljum við minna fólk á að klára að skrá inn allan sinn lestur. Þó að síðasti dagur leiksins sé sunnudagurinn 19. febrúar verður hægt að skrá helgarlesturinn fram að miðnætti á mánudag, 20. febrúar.
Takið frumlega sjálfsmynd með bók og póstið á vefinn.
Þó að bókin sé auðvitað aðalatriðið er síminn líklega ekki langt undan, nýttu endilega tækifærið um helgina til að taka eina sjálfu með bók í hönd og merktu #allirlesa á Facebook og Instagram. Verðlaun eru í boði fyrir frumlegustu lestrarmyndina! Áfram lestrarveginn!
Athugið svo að það má skrá allan lestur, líka dagblaðalestur, tímarit og slíkt!
Fylgist með Allir lesa á facebook til að fá úrslitin beint í æð!