Frá og með mánudeginum 13. febrúar næstkomandi verður starfrækt mötuneyti í Víðihlíð 2. hæð, fyrir eldri borgara. Um tilraunaverkefni er að ræða til þriggja mánaða til að kanna þörf og eftirspurn fyrir mötuneyti (eftir slíkri þjónustu).
Heitur matur verður kl. 11.30 alla virka daga í salnum og þurfa pantanir að berast á föstudegi fyrir komandi viku. Hver máltíð kostar 1.000 kr. á mann.
Pantanir fyrir vikuna 13. - 17. febrúar þurfa að berast fyrir kl. 12:00 föstudaginn 10. febrúar í síma 426-8014 (Miðgarður) eða 420-1100 (bæjarskrifstofur).
Matseðlar næstu tveggja vikna
Mánudagur 13. febrúar
Steiktur fiskur í raspi
Sætsúpa
Þriðjudagur 14. febrúar
Kjöt
Kjötsúpa
Miðvikudagur 15. febrúar
Laukbuff
Aspassúpa
Fimmtudagur 16. febrúar
Fiskibollur
Sveskjugrautur
Föstudagur 17. febrúar
Lærissneiðar
Grænmetis-súpa
Mánudagur 20. febrúar
Fiskipaté
Kakósúpa
Þriðjudagur 21. febrúar
Gúllas
Grautur
Miðvikudagur 22. febrúar
Ítalskur kjötréttur
Lauksúpa
Fimmtudagur 23. febrúar
Kjötbollur
Sveppasúpa
Föstudagur 24. febrúar
Ýsa, hrogn og lifur
Grjónagrautur