Hluti af því að hvetja börn til lesturs er að segja þeim frá bókum, benda á höfunda, vekja athygli á myndskreytingum og þess háttar. Andrea Ævarsdóttir forstöðumaður Bókasafns Grindavíkur hefur boðið upp á þá þjónustu að koma inn í bekki og kynna þeim bækur sem safnið á. Nemendur í 2. M, 3. M og 3.V fengu Andreu í heimsókn í síðustu viku. Þar kynnti Andrea margar áhugaverðar bækur m.a. Lepp, Bjarnarstaðarbækurnar, Ljósin í turninum, fótboltabækur, ævintýrabækur, bækurnar um Móa hrekkjusvín, Grimmsævintýri og bækur Guðrúnar Helgadóttur. Landsleikurinn Allir lesa er í fullum gangi núna þar sem mjög margir keppast við að lesa sem flestar mínútur.
Síðustu tölur sem heimasíðan heyrði um hljóðuðu þannig að 3. M og 3. V væru komnir með flestar mínútur. Landsleikurinn stendur til 19. febrúar þannig það er aldrei að vita hver sigrar hvern. En svo má segja að: sá vinnur sem tekur þátt!