Skólaskrifstofa Grindavíkur býður börnum með ADHD að taka þátt í námskeiði til að efla færni á ýmsum sviðum. Námskeiðið er fyrir börn á aldrinum 8-10 ára og eru 6 börn í hverjum hóp. Áhersla er lögð á að auka færni barna í félagslegum samskiptum, skapstillingu, sjálfsstjórn og að bæta athyglisgetu þeirra. Hópurinn hittist tvisvar í viku, miðvikudaga og föstudaga, 2 tíma í senn, í 5 vikur (10 skipti alls) með tveimur þjálfurum. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 8. mars og lýkur í vikunni fyrir páska. Námskeiðsgjald er 10.000 kr.
Eftirfarandi þættir eru teknir fyrir með börnunum í litlum hópum:
Tilfinninga- og reiðistjórnun: Börnunum eru kenndar ýmsar aðferðir við að stilla tilfinningar sínar þegar það er ekki viðeigandi að sýna þær, m.a. reiðistjórnun í samskiptum. Þar að auki læra þau um tilfinningar, svipbrigði og áhrif aðstæðna á líðan þeirra og annarra. Sú þekking mun nýtast þeim í samskiptum við aðra.
Félagsfærni: Farið er yfir atriði eins og hvernig og hvenær er viðeigandi að hefja samskipti við aðra, samskiptareglur og færni í að setja sig í spor annarra.
Sjálfsstjórn: Kenndar eru aðferðir sem nýtast við að hamla hvatvísi og auka stjórn á eigin hegðun.
Þrautalausnir: Farið er yfir aðferðir við að leysa ýmis vandamál sem upp koma á skynsamlegan hátt. Í því felst að finna valmöguleika í stöðunni, hugsa um mögulega útkomu hvers valmöguleika og velja bestu lausnina til að ná ákveðnu markmiði.
Athyglisþjálfun: Í hverjum tíma eyðir hvert barn u.þ.b. 20 mínútum í tölvuforriti sem er ætlað að auka athyglisgetu, vinnsluminni og vinnsluhraða.
Umbunarkerfi: Hvert barn vinnur sér inn í hverjum tíma spilapeninga sem það fær fyrir að vinna verkefni og fara eftir reglum á stöðvunum. Í lok hvers tíma fá börnin að fara í Snillingabúðina þar sem þau geta keypt fyrir spilapeningana límmiða, bolta, tattoo, slím, armbönd, fótboltamyndir, og margt fleira, en einnig safnað upp í stærri vinninga eins og bíómiða. Í lok námskeiðsins teljum við saman öll stigin sem krakkarnir hafa náð að safna sér inn í sameiningu og ef þau hafa náð 400 stigum samtals höldum við pizza partý í síðasta tímanum.
Umsjón með námskeiðinu hafa Ingibjörg María Guðmundsdóttir, sálfræðingur, 864-5481 ingamaria@grindavik.is og Hanna Dorothéa Bizouerne sálfræðingur, hannad@grindavik.is
Skráning hjá umsjónaraðilum fyrir 2. mars.