Embætti landlæknis og Tannlæknafélag Íslands standa fyrir Tannverndarviku 30. janúar - 3. febrúar 2017 með skilaboðum til landsmanna um að draga úr neyslu sykraðra drykkja og sætinda.
Veggspjaldið Þitt er valið hefur verið uppfært og endurútgefið á vegum Embættis landlæknis en þar má á myndrænan hátt sjá sykurmagn og sýrustig nokkurra algengra vatnsdrykkja, ávaxtadrykkja, gosdrykkja, íþróttadrykkja og orkudrykkja á innlendum markaði
Við bendum einnig á efni um tannheilsu sem má nálgast á vef Embættis landlæknis í verkfærakistu Tannheilsu í Heilsueflandi grunnskóla.
Hér má sjá frétt um Tannverndarvikuna á heimasíðu Embættis landlæknis