Þá er komið að lestarátaki í Grunnskólanum en við ætlum að taka þátt í Allir lesa-landsleikur í lestri.
Lestarátakið stendur yfir frá 27. janúar til 19. febrúar og verður viðbót við hefðubundinn heimalestur. Ætlast er til að nemendur lesi aukalega að lágmarki 15 mínútur á dag.
Á meðan á lestrarátakinu stendur verður allur lestur (heimalestur, yndislestur í skólanum og lesturinn fyrir átakið) skráður á sérstakt kvittanablað. Allir bekkir í skólanum verða skráðir sem lið á síðunni allirlesa.is og þar verður hægt að sjá hvernig liðunum gengur. En átakið gengur út á að safna mínútum.
Allir fá viðurkenningarskjöl í lokin auk þess fær sá bekkur sem lesið hefur flestar mínútur verðlaun.
Allir nemendur skólans taka þátt í landsleiknum í lestri og vonandi sjáum við Grindavík meðal þeirra sveitafélaga sem lesa hvað mest í átakinu! Við hvetjum því foreldra til að taka þátt líka.
Lesa má nánar um átakið á allirlesa.is
Kveðja, kennarar í Grunnskóla Grindavíkur.