Grindavíkurbær hefur regulega birt lista yfir lausar lóðir í sveitarfélaginu. Hann má nú nálgast á undirsíðu hér á vefnum. Tengill er í valmyndinni hér á vinstri hönd en einnig má smella hér til þess að nálgast listann.
Í Grindavík er hagsætt að byggja en kostnaður vegna nýbygginga er í algjöru lágmarki hjá sveitarfélaginu. Þeir sem vilja byggja í Grindavík þurfa einungis að inna af hendi lágt lóðaúthlutunargjald og greiða síðan gatnagerða- og tengigjöld. Gott framboð er af lóðum af ýmsum toga þessa dagana í Grindavík, hvort sem menn hafa áhuga á að byggja einbýli, parhús, raðhús eða fjölbýli. Einnig eru lausar lóðir sem skipulagðar hafa verið fyrir verslun- og þjónustu og þá eru lausir byggingareitir í hestahúsahverfinu.