Grindavík og Grindvíkingar voru áberandi í Suðurnesjamagasíni Sjónvarps Víkurfrétta sem sent var út í gær. Í þættinum var viðtal við tvo Grindvíkinga, þá Pétur Rúðrik Guðmundsson, landsliðsþjálfara í pílukasti, og Magnús Mána Magnússon, búningameistara með meiru. Þá voru einnig sýndar flottar myndir í þættinum frá Grindavík sem teknar voru í drónaflugi. Hægt er að horfa á þáttinn hér að neðan og hefst þáttur Grindavíkur í kringum 12 mínútna markið.