Föstudaginn 6. janúar fer fram hin árlega friðarganga, sem fresta þurfti í tvígang í aðdraganda jólanna vegna veðurs. Markmið göngunnar er að efla samkennd og samhug með því að boða jákvæðni, gleði og kærleika í samfélaginu. Allir Grindvíkingar eru velkomnir að slást með í för.
Við biðjum ökumenn að sýna biðlund og virða þær lokanir sem verða á götum bæjarins. Lokanir hefjast kl. 08:00 og standa til 08:30. Rétt er að vekja athygli á að eftir að lokunum lýkur verða fjölmörg börn á ferð á leið aftur í skóla sína.