Löng hefð er fyrir hátíðarhöldum á þrettándanum í Grindavík og líkt og undanfarin ár munu púkar fara á stjá og sníkja gott í pokann. Þeir munu sennilega fara að sjást á ferli fljótlega upp úr klukkan 16:00 en klukkan 19:00 verður safnast saman við Aðal-Braut og þaðan gengið fylktu liði í skrúðgöngu niður að Kviku þar sem hátíðardagskrá mun fara fram. Við hvetjum unga jafnt sem aldna til að mæta í gönguna í skrautlegum búningum.
Dagskrá:
Kl. 19:00 Gengið fylktu liði frá Aðal-Braut, Víkurbraut 31 að Kviku
Aðal-Braut og Coca-Cola gefa börnum sem taka þátt í göngunni Trópi og kyndilberar
koma frá Hafbjörgu
Kl. 19:15 Dagskrá við Kviku:
Álfakóngur og álfadrottning syngja. Sigga Mæja og Palli
Undirleikur: Renata Ivan
Söngatriði: feðginin Guðrún Lilja jólastjarna og Dagbjartur Willardsson
Söngatriði frá Þrumunni
Útnefning á Grindvíkingi ársins.
Úrslit í búningakeppni
Jólasveinar koma í heimsókn
Kaffi- og eða sjoppusala í Kvikunni á vegum 7. og 8. flokks stúlkna í
körfuknattleik. Allur ágóði rennur í ferðasjóð.
Kl. 20:00 Glæsileg flugeldasýning við höfnina í boði:
Besa, Bláa Lónið, Bryggjan Kaffihús, EB. þjónusta, Einhamar Seafood, Englaberg, Fish House, Fiskmarkaður Suðurnesja, Fiskverkun ÓS, Fjórhjólaævintýri, Flutningaþjónusta Sigga, GG Sigurðsson, Grindin, Grindavíkurbær, Hárhornið, Hérastubbur bakari, HH Rarfverktaki, Hjólbarðaverkstæði Grindavíkur, Hópsnes, Jón og Margeir, Jónsi Múr, Klafar, Köfunarþjónusta Gunnars, Landsbankinn, Málningaþjónusta Grétars, Málningaþjónusta Rúnars, Nettó í Grindavík, Northern Light Inn, Olís, Palóma, Papa's Pizza, Páll Gíslason, PGV-Framtíðarform, Rossini, Seglasaumur Sigurjóns, Shell (Orkan), Sílfell, Sjómannastofan Vör, Sjóvá, Staðarþurrkun, Stakkavík, Stjörnufiskur, Söluturninn, Tannlæknastofa Guðmundar Pálssonar, TG Raf, Tryggingamiðstöðin, Veitingahúsið Salthúsið, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Vélsmiðja Grindavíkur, Vísir, Þorbjörn, Örninn GK 203.
Þrettándagleðin er samstarfsverkefni frístunda- og menningarnefndar Grindavíkurbæjar og Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar.
Grindavíkurbær óskar öllum bæjarbúum velfarnaðar á nýju ári.