Klókir litlir krakkar - námskeiđ fyrir foreldra barna međ kvíđaeinkenni

  • Fréttir
  • 3. janúar 2017

Námskeiðið Klókir litlir krakkar er meðferð fyrir börn á aldrinum 3-7 ára sem eru í áhættuhópi fyrir kvíðaröskun. Námskeiðið miðar að því að fræða foreldra um eðli kvíða og kenna þeim leiðir til að takast á við kvíðahegðun barna sinna og auka sjálfstraust þeirra. Vonast er til að með slíku námskeiði verði hægt að minnka kvíðahegðun barna og í sumum tilfellum koma í veg fyrir að börn þrói með sér kvíðaröskun.

Foreldrar verða beðnir um að svara nokkrum spurningalistum fyrir og eftir námskeið til að meta árangur. Leiðbeinendur námskeiðanna eru sálfræðingar sem eru sérfróðir um kvíðaraskanir barna og hafa staðgóða reynslu af vinnu með foreldrum og börnum.

Námskeiðsgjaldið er 12.500 krónur fyrir foreldra hvers barns.
Mikilvægt er að foreldrar mæti vel í tímana og mælt er með því að báðir foreldrar sæki námskeiðið.

Fyrirkomulag
Hvert námskeið er 12 klukkustundir og skiptist í 6 skipti, 2 klst. í senn. Námskeiðið verður haldið í fundarsal á bæjarskrifstofur Grindavíkur, Víkurbraut 62 frá kl. 16:30 til 18:30. Fyrstu 4 skiptin eru vikulega, síðan verður frí milli 4. og 5. tíma og frí milli 5. og 6. tíma (sjá dagskrá hér að neðan). Rík áhersla er lögð á umræður og virka þátttöku foreldra til að tryggja að efnið nýtist hverjum og einum sem best. Milli tíma vinna foreldrar heimaverkefni sem snúa að því að vinna með kvíðaeinkenni barna sinna.

DAGSKRÁ
Tími 1 - miðvikudaginn 18. janúar
Tími 2 - miðvikudaginn 25. janúar
Tími 3 - miðvikudaginn 1. febrúar
Tími 4 - miðvikudaginn 8. febrúar
FRÍ
Tími 5 - miðvikudaginn 22. febrúar
FRÍ
Tími 6 - miðvikudaginn 8. mars

Skráning er hafin og lýkur 10. janúar. Skráning fer fram á hannad@grindavik.is

Foreldrar verða síðar að staðfesta skráningu með því að fylla út spurningalista og greiða fyrir námskeiðið.

Hanna Dorothéa Bizouerne og Ingibjörg María Guðmundsdóttir sálfræðingar á Skólaskrifstofu Grindvíkur

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun