Félag slökkviliðsmanna í Grindavík hefur undanfarin ár tekið virkan þátt í flugeldamarkaði björgunarsveitarinnar Þorbjarnar. Þeir eru þar þó ekki að selja flugelda heldur að sinna forvörnum og fræðslu um brunavarnir. Bjóða þeir til sölu öll helstu tæki og tól sem viðkoma brunavörnum, svo sem slökkvitæki, reykskynjara, eldvarnarteppi og fleira.
Að sögn Ásmundar Jónssonar slökkviliðsstjóra er hér um sjálfboðaliðastarf hjá Félagi slökkviliðsmanna að ræða og er þetta orðin árviss hefð hjá þeim að taka þátt í undirbúningi áramótanna, enda er þetta sá tími árs sem flest óhöpp verða sem tengjast eldsvoðum.
Þeir félagar eru á staðnum á sama tíma og flugeldamarkaðurinn er opinn, en það er opið til 22:00 í kvöld og svo frá 10:00-16:00 á morgun. Ásmundur hvetur Grindvíkinga til að kíkja við, fá sér kaffi og huga að brunavörnum. Það er aldrei of varlega farið.