Félagar í Lionsklúbbi Grindavíkur komu færandi hendi í Víðihlíð í gær og afhentu stofnuninni veglegar gjafir sem munu án vafa koma að góðum notum fyrir íbúa á dvalarheimilinu sem og gesti. Um er að ræða tvö 55" tommu Samsung sjónvörp ásamt hljóðkerfi, sem munu leysa af hólmi lúin 32" tommu tæki í setustofum.
Það er ekki amalegt að eiga svona öfluga sjálfboðaliða eins og þá Lionsmenn sem styrkja og styðja Grindvíkinga með ráðum og dáðum.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru við afhendingu gjafanna.