Linda Eshun, leikmaður Grindavíkur er einnig landsliðskona hjá Ghana. Hún spilaði með landsliðinu í Afríkubikarnum fyrr í desember og er skemmst frá því að segja að hún tryggði liðinu bronsið á mótinu með því að skora sigurmarkið í 1-0 sigri á S-Afríku. Linda var öflug í liði Grindavíkur í sumar en hún skoraði 6 mörk í 14 leikjum og var valin besti leikmaður liðsins á lokahófinu.
Fótbolti.net greindi frá:
„Linda Eshun, leikmaður Grindavíkur, skoraði sigurmark Gana í dag [2. desember] er liðið sigraði Suður-Afríku 1-0, í úrslitaleiknum um bronsverðlaunin í Afríkubikar kvenna.
Eshun skoraði mark á 49. mínútu leiksins og það reyndist nóg til þess að tryggja sigur í leiknum og bronsverðlaunin um leið.
Eshun spilaði vel fyrir Grindavík í sumar, en hún gerði sex mörk í 14 leikjum í 1. deild kvenna. Hún spilaði áður með Víkingi Ólafsvík í eitt tímabil.
Hún er ekki eini leikmaður Gana sem spilar hér á landi því Janet Egyir og Samira Suleman, leikmenn Víkings Ó. spila einnig með liðinu.“