Félagsþjónustu- og fræðslusvið Grindavíkurbæjar býður upp á PMTO foreldranámskeið á nýju ári. Um er að ræða 14 vikna hópþjálfun þar sem 10-16 foreldrar fá ráðgjöf frá PMTO meðferðaraðila á vikulegum 1,5 klst fundum og vinna verkefni heima á milli funda. Þjálfunin hefst í byrjun janúar og lýkur fyrir páska. Hún fer fram í fundarsal á bæjarskrifstofu (gamla bókasafnið) á mánudögum.
Kostnaður á fjölskyldu er 10.000 kr. Lagt er upp úr samvinnu foreldra og því áhersla á að báðir foreldrar mæti ef það er mögulegt. Kennarar eru Sigrún Pétursdóttir, Thelma Björk Guðbjörtsdóttir og Ingibjörg María Guðmundsdóttir PMTO meðferðaraðilar.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Ingibjörgu í síma 420-1100 eða netfang ingamaria@grindavik.is