Hljómsveitin Reggie Óðins heldur tónleika á Fish house föstudagskvöldið 9. desember kl. 21:30 þar sem þau kynna nýjustu plötuna sína í bland við eldra efni. Frítt inn og tilboð á barnum.
Af Facebook-síðu tónleikanna:
„Reggie Óðins og hljómsveit hafa starfað saman síðan sumarið 2013 og hafa gefið út 3 plötur, tvær á íslensku og eina á ensku. Hljómsveitarmeðlimir eru 5 talsins og eru með afar ólíkan tónlistarsmekk. En þar sem hljómsveitin mætist á miðri leið verður tónlistarstefnan vægast sagt mjög skemmtileg.“