Eins og Grindvíkingar, og sennilega flestir Íslendingar, vita er Grindavík einn af allra áhugaverðustu bæjum landsins. Það hefur nú verið endanlega staðfest en samkvæmt vefsíðunni HitIceland er Grindavík 6. áhugaverðasti bær landsins. Er þéttbýlisstöðum landsins gefin einkunn á vefsíðunni sem tekur mið af ýmsum þáttum, svo sem nálægð við náttúruperlur, snyrtileika bæjarfélagsins, gistimöguleikum, veitingahúsum og fjárhagsstöðu.
Á vefsíðunni segir (í lauslegri þýðingu okkar) um Grindavík:
Grindavík er heimabær Bláa Lónsins
Á Reykjanesskaga eru mörg áhugaverð náttúruundur. Grindavík er í hæfilegri fjarlægð frá mörgum þeirra og einnig heimabær hins heimsfræga Bláa Lóns. Grindavík er bær með sterkar fjárhagslegar stoðir og einn af sterkustu útgerðarbæjum Íslands. Undanfarið hefur bærinn tekið ferðaþjónustu fagnandi og hér finnurðu góða veitingastaði, frábæra gistimöguleika og besta tjaldsvæði landsins. Grindvík er einnig mjög snyrtilegur bær sem er vel viðhaldið og þar má finna áhugaverð gömul hús. Höfnin er afar lifandi og þar má fá íslenskan sjávarútveg beint í æð og sjá mörg stór og áhugaverð skip koma með afla að landi og leggja sitt af mörkum í grunnatvinnuvegi landsins.
Til að fræðast meira er hægt að lesa þessa grein um Grindavík.