Bjartmar Guðlaugsson gerði stormandi lukku á árlegum jólafundi starfmanna Grunnskólans í gær þann 1. desember. Bjartmar las upp úr bókinni sinni Þannig týnist tíminn og söng nokkur lög. Í bók sinni segir Bjartmar sögur úr æsku sinni, að mestu sannar - sprenghlægilegar og hugheilar. Þær lýsa tíðaranda og mannfólki í íslensku samfélagi svo af ber.
Þá veitti stjórn starfsmannafélags Grunnskólans verðlaun fyrir ljóðasamkeppni starfsmanna sem haldin var í tilfefni dags íslenskrar tungu þann 16. nóvember sl. Besta ljóðið að mati dómnefndar átti Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, Halla Kristín Sveinsdóttir lenti í öðru sæti og Stefanía Ólafsdóttir því þriðja. Í lokin dró stjórnendateymið síðan út nokkra bragðgóða vinninga og bækur í happadrætti.
Rannveig Jónína les upp verðlaunaljóð sitt
Stjórn starfsmannafélagsins
Stýrur skólans stjórnuðu smá happadrætti