Útboð: sex íbúðir við Víðihlíð

  • Stjórnsýsla
  • 24. nóvember 2016

Grindavíkurbær óskar eftir eftir tilboðum í byggingu 6 íbúða fyrir aldraða við Víðihlið í Grindavík. Um er að ræða viðbyggingu á tveimur hæðum við núverandi íbúðir aldraðra. Verkið er fólgið í jarðvinnu, uppsteypu, fullnaðarfrágangi innan- og utanhúss ásamt frágangi lóðar. Helstu magntölur eru: Gröftur 700 m3, fyllingar 700 m3, fleigun klappar 300 m3, mót 1870 m2, bending 19.000 kg, steypa 260 m3.

Áætlað er að verk geti hafist 19. desember 2016 og verklok eru 31. mars 2018.

Útboðsgögn verða send á tölvutækuformi til þeirra er þess óska frá og með þriðjudeginum 15. nóvember 2016. Áhugasamir skulu senda upplýsingar um fyrirhugaðann bjóðanda ásamt tengilið, síma og netfangi til Tækniþjónustu SÁ ehf á netfangið thg@t-sa.is eða í síma 421-5105.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, í lokuðu umslagi merktu viðkomandi verki fyrir kl: 11:00 þriðjudaginn 6. desember 2016, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra er þess óska.

 


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum