30 ára afmćlisveisla hjá Ţrumunni - Afmćlisblađ

  • Fréttir frá Ţrumunni
  • 4. nóvember 2016

Núna færð þú loksins tækifæri til þess að fá betri innsýn inn í það frábæra starf sem í boði er fyrir unglinga Grindavíkur. Miðvikudaginn 9. nóvember ætla unglingar Þrumunnar að bjóða bæjarbúa velkomna í 30 ára afmæli Þrumunnar frá kl. 18.00-22.00. 

Auðvitað verður afmæliskaka á staðnum, hægt verður að skoða gamlar myndir úr Þrumunni, óvæntir gestir kíkja í heimsókn, farið verður í margvíslegar keppnir þar sem nemenda- og Þrumuráð hafa skorað á hina ýmsu bæjarbúa og margt, margt fleira.

Unglingar Þrumunnar skora á ÞIG til að mæta. Komdu og kíktu á aðstöðuna og þú getur jafnvel tekið 1-2 leiki í borðtennis, FIFA, þythokkí, fúsball eða jafnvel Kassa.
Við viljum sjá sem flesta Grindavíkinga mæta. Gamla unglinga, frænkur, frændur, afa, ömmur, mömmur, pabba og systkini.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Við höfum jafnframt gefið út afmælisblað sem dreift verður í öll hús. Afmælisblaðið má einnig sjá hér.

Kveðja
Félagsmiðstöðin Þruman


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir