Alþingiskosningar verða haldnar á Íslandi á morgun, laugardaginn 29. október, og verður það í 22. skiptið sem þær eru haldnar frá lýðveldisstofnun. Kjörstaður hér í Grindavík verður í Grunnskóla Grindavíkur í Iðunni við Ásabraut 2. Kjósendur skulu framvísa persónuskilríki á kjörstað. Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00.