Ásgeir Ingólfsson ekki međ Grindavík í Pepsi-deildinni

  • Knattspyrna
  • 28. október 2016

Knattspyrnudeild UMFG hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við Ásgeir Þór Ingólfsson sem leikið hefur með liðinu undanfarin tvö ár. Ásgeir, sem fæddur er árið 1990. kom til Grindavíkur frá Haukum og lék 36 leiki fyrir liðið og skoraði 2 mörk. 

Fótbolti.net greindi frá:Ásgeir Þór Ingólfsson er á förum frá Grindavík en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.

„Ásgeir hefur spilað með Grindavík undanfarin tvö ár en hann var fyrirliði liðsins um tíma. Samningur Ásgeirs rann út á dögunum og Grindavík hefur ákveðið að framlengja hann ekki.

„Ég fékk þau skilaboð að ekki yrði samið við mig aftur. Það er bara eins og gengur og gerist í boltanum en þegar einar dyr lokast þá opnast aðrar, sagði Ásgeir við Fótbolta.net í dag.

„Ég er nú þegar byrjaður að æfa á fullu og kem tvíefldur til leiks. Ég hef virkilegan áhuga á að spila í Pepsi-deildinni þó svo að ég loki alls ekki á annað."

„Ég vil þakka Grindvíkingum fyrir tvö æðisleg ár. Ég eignaðist virkilega marga góða vini bæði innan sem utan vallar og ég óska þeim alls hins besta á komandi tímum og árum."

Hinn 26 ára gamli Ásgeir er fjölhæfur leikmaður en hann hefur spilað á kanti, miðju og í bakverði á ferli sínum. Ásgeir spilaði 13 leiki þegar Grindavík fór upp úr Inkasso-deildinni á nýliðnu tímabili. Hann lék áður með uppeldisfélagi sínum Haukum auk þess sem hann spilaði í eitt ár með Val.“

 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun