Kattareigendur í Grindavík eru hvattir til þess að huga vel að því að kettirnir þeirra séu bæði merktir og skráðir hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hér má finna umsóknarblað fyrir skráningu katta. Á næstu dögum verður farið í átak vegna skráningu katta og óskráðir kettir fangaðir.
Óskráðir kettir sem verða fangaðir eru færðir til Keflavíkur þar sem þeir eru vistaðir í 7 daga og síðan lógað ef þeim er ekki vitjað. Athugið að misbrestur getur hafa orðið í skráningarferlinu á sínum tíma og því hvetjum við alla kattaeigendur til að athuga vel hvort þeirra dýr séu ekki örugglega skráð hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.
Samþykkt um kattahald á Suðurnesjum