56. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 19. september 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Klara Halldórsdóttir formaður, Ámundínus Örn Öfjörð aðalmaður, Ómar Örn Sævarsson aðalmaður, Guðmundur Grétar Karlsson aðalmaður, Sigurpáll Jóhannsson varamaður, Valdís Inga Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi, Inga Þórðardóttir skólastjóri, Halldóra Kristín Magnúsdóttir grunnskólastjóri, Elva Björk Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, Sæborg Reynisdóttir áheyrnarfulltrúi og Fríða Egilsdóttir leikskólastjóri, Bylgja Héðinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri, Petra Rós Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Ingibjörg María Guðmundsdóttir, yfirsálfræðingur.
Dagskrá:
1. 1609028 - Tónlistarskóli: Starfsáætlun 2016-2017
Inga Þórðardóttir lagði fram starfsáætlun Tónlistarskólans 2016-2017 ásamt uppfærðri skólanámskrá Tónlistarskólann. Skólastjóri birtir skjölin á heimasíðu skólans.
2. 1609024 - Leikskólinn Laut: starfsáætlun 2016-2017
Fríða Egilsdóttir leggur fram starfsáætlun Lautar skólaárið 2016-2017 til staðfestingar. Fræðslunefnd staðfestir starfsáætlun með þeim ábendingum sem fram komu og felur skólastjóra að birta hana á heimasíðu skólans.
3. 1608043 - Skólaþjónusta: starfsáætlun 2016-2017
Ingibjörg María Guðmundsdóttir lagði aftur fram starfsáætlun skólaþjónustu til að gefa fulltrúum grunnskóla kost á ábendingum.
4. 1502022 - Skólanámskrá Grunnskóla Grindavíkur
Lögð fram tillaga um að umfjöllun um einstaka þætti skólanámskrár Grunnskóla Grindavíkur verði frestað þar til að skólanámskráin kemur inn til staðfestingar fræðslunefndar og fundað verður um skólanámskrá Grunnskóla Grindavíkur í einni heild. Málinu frestað til næsta reglulega fundar í október.
5. 1603008 - Grunnskóli Grindavíkur: Námsmat og lykilhæfni
Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri kynnti stöðuna í verkefninu og næstu skref.
6. 1609026 - Grunnskólinn: Teymisvinna í 1. bekk
Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri kynnti teymisvinnu í skólanum.
7. 1609027 - Grunnskóli: Starfsáætlun 2016-2017
Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri leggur fram starfsáætlun Grunnskólans skólaárið 2016-2017 til staðfestingar. Fræðslunefnd staðfestir starfsáætlun Grunnskólans.
8. 1511033 - Skólastarf: Ytra mat sveitarfélags á skólahaldi 2015 - 2016
Ingibjörg María Guðmundsdóttir lagði fram skýrslu um ytra mat sveitarfélags á skólahaldi 2015-2016.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:15.