Kirkjuklukkunum hringt fyrir íbúa Aleppo í Sýrlandi

  • Fréttir
  • 24. október 2016

Í dag hringdu kirkjuklukkur Grindavíkurkirkju kl. 12:00 og munu þær hringja á hádegi alla næstu viku. Tilefnið er alþjóðlegt átak þar sem kirkjuklukkum er hringt til þess að vekja athygli á ástandinu í hinni stríðshrjáðu borg Aleppo í Sýrlandi. Á heimasíðu Grindavíkurkirkju segir eftirfarandi:

Klukkum hringt á hádegi næstu viku

Eins og fréttir herma er saklaust fólk limlest eða lætur lífið í stríðsátökunum í Aleppo í Sýrlandi þessa dagana. Ráðamenn virðast ekki geta fundið lausn til friðar og uppbyggingar. Hugmynd finnska prestsins Teemu Laajasalo í Kallio sókn í lútersku finnsku kirkjunni hefur orðið að veruleika. Honum sveið ástandið eins og okkur öllum og ákvað að klukkum í hans kirkju skyldi hringt daglega kl. 17:00 frá 12. til 24. október, en 24. október er dagur Sameinuðu þjóðanna.

Þessi hugmynd hefur breiðst út og á vefnum http://bellsforaleppo.org/ má sjá að kirkjurnar í Svíþjóð, Bretlandi og víða í Evrópu hafa gert slíkt hið sama. Tilgangurinn er að sýna fólkinu í Aleppo, lífs og liðnu virðingu og samkennd og vekja athygli á ástandinu.

Lúterska heimssambandið, sem okkar kirkja er aðili að, vekur athygli á framtakinu og hvetur fleiri kirkjur til að taka þátt. Það getur ekkert réttlætt þjáningar barna og óbreyttra borgara í Aleppo. Klukkum Grindavíkurkirkju verður hringt daglega á hádegi frá 24. til og með 31. október. Um leið er til þess mælst að beðið verði fyrir fólki og ástandi í Aleppo og endir verði bundinn á þann hrylling er þar á sér stað.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!