1422. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 18. október 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson formaður, Kristín María Birgisdóttir varaformaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum og bætast við dagskrá:
6. Leikskólinn Laut: Beiðni um viðauka vegna launa í fjárhagsáætlun 2016.
og 7. Ráðning: sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs.
Samþykkt samhljóða
Dagskrá:
1. 1610034 - Miðgarður uppbygging: Útboðsgögn
Drög að útboðsgögnum lögð fram til kynningar.
2. 1610016 - Brú Lífeyrissjóður: Hækkun mótframlags
Bréf frá lífeyrissjóðnum Brú um hækkun á framlagi launagreiðanda í 16,8% lagt fram.
3. 1610032 - Viðaukar við fjárhagsáætlun: Bréf frá Innanríkisráðuneyti
Bréf dags. 3. október 2016 lagt fram.
4. 1610033 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2016: Áhrif kjarasamninga
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna áhrifa kjarasamninga á laun. Áætluð áhrif á fjárhagsáætlun 2016 er 85.829.000 kr. og er fjármagnað með lækkun lykla 21611-1110 um kr. 22.000.000 og lækkun á 21611-1890 um kr. 5.500.000. Mismun að fjárhæð 58.329.000 kr. er fjármagnaður með hækkun á áætlun staðgreiðslu ársins 2016.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.
5. 1606072 - Fjárhagsáætlun 2017-2020: Grindavíkurbær og stofnanir
Drög að fjárhagsáætlun 2017-2020 lögð fram.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
6. 1610049 - Leikskólinn Laut: Beiðni um viðauka vegna launa í fjárhagsáætlun 2016
Beiðni frá skólastjóra Leikskólans um viðauka við fjárhagsáætlun 2016 að fjárhæð 1.364.000 kr. á launalið leikskólans.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur og fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
7. 1610020 - Ráðning: sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs
Bæjarráð felur bæjarstjóra að bjóða Björgu Erlingsdóttur stöðu sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.