Sólbaðsstofan Eðalsól, sem staðsett er í íþróttamiðstöð Grindavíkur, fékk á dögunum nýjan eiganda en Sverrir Júlíusson hefur keypt reksturinn af Páli H. Pálssyni. Sverrir ætlar sér stóra hluti með sólbaðsstofuna en hann hyggst byrja að bjóða aftur upp á Boost drykki á morgun og þá hefur hann opnað vefsíðu, www.edalsol.com.
Grindavík.net greindi frá eigendaskiptunum:
„Á dögunum var undirritaður kaupsamningur að Eðalsól Sólbaðsstofu og Boost bar í Grindavik. Eðalsól er staðsett í íþróttamiðstöð Grindavíkur. Sólbaðsstofan var stofnuð á vormánuðum 2014. Páll H Pálsson er fyrri eigandi sólbaðsstofunnar.
Páll starfar í útgerðarsviði hjá Vísi hf í Grindavík og sökum anna í starfi hafði hann ekki getað synt starfi sínu eins og hann kaus og setti því fyrirtækið í sölu. Nýr eigandi er Sverrir Júlíusson. Sverrir ætlar sér að koma aftur með boost drykkina vinsælu auk þess að hann mun bæta úrval drykkja og annað vöruúrval. Sverrir hefur sett upp heimasíðu fyrir sólbaðsstofuna www.edalsol.com og þar er hægt að sjá nýjustu tilboðin.“