Þriðjudaginn 11. október fóru nemendur úr 9. og 10. bekk á starfsgreinakynningu Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum í íþróttahúsinu í Keflavík. Þar var fjöldinn allur af fólki sem kynnti störf sín fyrir nemendum. Nemendur gengu á milli bása og kynntu sér ýmis störf og voru þeir duglegir að afla sér upplýsinga um menntun, námstíma og kjör ýmissa starfa. Almenn ánægja var meðal nemenda og voru þeir áhugasamir.