Félagsmiðstöðin Þruman ásamt umsjónakennurum í 9. bekk sáu um verkefnastjórnun Forvarnardagsins í ár, en hann var haldinn í dag, miðvikudaginn 12. október. Forvarnardagurinn er haldinn fyrir 9. bekk í öllum skólum landsins. Með deginum er verið að koma á framfæri þremur heillaráðum sem rannsóknir hafa sýnt að geta stuðlað að því að ungmenni verða síður áfengi og fíkniefnum að bráð. Rannsóknir sýna að besta forvörnin gegn vímuefnanotkun sé samvera með fjölskyldu, þátttaka í æskulýðsstarfi og frestun á að hefja neyslu áfengis.
Nemendur í Grunnskóla Grindavíkur horfðu saman á myndband. Þeir mynduðu svo umræðuhópa þar sem svarað var spurningum. Hver hópur kynnti sínar hugmyndir fyrir samnemendum sínum.
Öllum ungmennum í 9. bekk stendur til boða að taka þátt í ratleik inná www.forvarnardagur.is í þeirra frítíma. Nánari upplýsingar eru á vefnum. Vegleg verðlaun eru fyrir þá sex aðila sem eru dregnir út og verða þeir nemendur boðnir til Bessastaða með fjölskyldu sinni á veglega verðlaunaafhendingu. Sú stund er afar hátíðleg og því til mikils að vinna