Boðið er upp á skákkennslu í Hópsskóla fyrir nemendur í 1.-3. bekk á þriðjudögum kl. 14-14.40. Sem fyrr er það skákkennarinn Siguringi Sigurjónsson sem sér um kennsluna. Siguringi hefur áralanga reynslu af skákkennslu. Nemendur eru hvattir til að nýta sér þetta góða tilboð að mæta og fá tilsögn í skáklistinni en skákin er mjög þroskandi og hafa rannsóknir sýnt að hún skerpir hugann.