Síðastliðinn miðvikudag fóru ungmennaráð Grindavíkur og nemenda- og Þrumuráð á Fræðsludag sem Samtök félagsmiðstöðva á Suðurnesjum (Samsuð) héldu fyrir öll ungmennaráð og nemendaráð á Suðurnesjum. Alls fóru 17 krakkar frá Grindavík. Þar var boðið upp á hópefli og svo fræðslufyrirlestra.
Sabína Steinunn Halldórsdóttir frá UMFÍ flutti fyrirlestur um framkomu og ræðumennsku, Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri hjá Grindavíkurbæ um hvernig hægt er að fylgja eftir góðri hugmynd til framkvæmdar) og Daníel Guðni Guðmundsson körfuboltaþjálfari og íþróttakennari um sigurvegarann.
Fræðsludagurinn heppnaðist ákaflega vel og er stefnt að því að gera hann að árlegum viðburði á vegum Samsuð.