Grindavíkurbær og Kvikan, auðlinda- og menningarhús, auglýsa eftir starfsfólki til að starfa í tímavinnu í Kvikunni um helgar í vetur. Vinnutími er frá kl. 11:00 - 17:00, aðra eða þriðja hverju helgi. Starfið felst í móttöku gesta, upplýsingagjöf, uppgjöri og þrifum.
Leitað er að einstaklingi 20 ára og eldri sem hefur;
- ríka þjónustulund
- góða tungumálakunnáttu
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og haft frumkvæði
- góða hæfni í mannlegum samskiptum
- mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki síst góða þekkingu á staðháttum í Grindavík og nágrenni.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri í síma 420 1100, netfang:thorsteinng@grindavik.is
Umsóknir skal senda á thorsteinng@grindavik.is eða fara með í afgreiðsluna á bæjarskrifstofunum, Víkurbraut 62, á opnunartíma.