Alexander og Linda valin best á lokahófi knattspyrnudeildarinnar

  • Knattspyrna
  • 30. september 2016

Lokahófið knattspyrnudeildar UMFG fór fram í með glæsibrag þann 24. september í íþróttahúsinu okkar og voru gestir á fjórða hundruð. Bjarni Óla eða Bíbbinn töfraði fram hlaðborð kvöldsins. Selma Björns og Regína Ósk trylltu lýðinn, Hjalli og Bjarki stóðu sig vel sem veislustjórar og að lokum spilaði hljómsveitin Brimnes undir dansi í rúma 3 tíma án þess að taka sér hlé.

Verðlaun voru veitt á hófinu fyrir tímabilið og fengu eftirfarandi verðlaun:

Meistaraflokkur karla:
*Besti leikmaður: Alexander Veigar Þórarinsson
2. sæti Björn Berg Bryde
3. sæti Rodrigo Gomes
*Mikilvægasti leikmaðurinn: Gunnar Þorsteinsson
*Markahæstur: Alexander Veigar.

Meistaraflokkur kvenna:
*Besti leikmaðurinn: Linda Eshun
2. sæti Marjani Hing Glover
3. sæti Dröfn Einarsdóttir og Sara Hrund Helgadóttir.
*Efnilegust: Kristín Anítudóttir Mcmillan
*Markahæst: Marjani Hing Glover

2. flokkur karla:
Besti leikmaðurinn: Marínó Axel Helgason
Mestu framfarir: Sigurður Bjartur Hallsson
Markahæsti leikmaðurinn: Marínó Axel HElgason

Eftirtaldir félagar voru gerðir að heiðursfélögum:
Ágúst Ingólfsson, Hilmar Knútsson, Jón Guðmundsson, Pétur Pálsson og Svanur Sigurðsson.
Jón Þór Hallgrímsson fékk viðurkenningu fyrir 10 ára starf. Jónasi Þórhallssyni formanni var færð gjöf en hann varð 60 ára á dögunum.


Arnar Már og Guðmundur Ingi fengu viðurkenningu fyrir að vera Liðsstjórar ársins 2016
Hérastubbur bakari og fjölskylda veittu meistaraflokkunum okkkar og þeim sem að þeim standa viðurkenningu fyrir góðan árangur í sumar.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!