Fyrsti fundur á þessu skólaári hjá nemendafulltrúaráðinu/ Stuðboltunum var haldinn í þessari viku. Hugmyndin að baki nemendafulltrúaráðinu er að auka nemendalýðræði, gefa nemendum kost á að taka þátt í ákvarðanatöku og skapa betra umhverfi þannig að bæta megi skólabrag Grunnskóla Grindavíkur.
Þessi hugmynd er að virka einstaklega vel. Nemendafulltrúaráð Grunnskóla Grindavíkur er þrískipt og skipt er eftir stigum. Hver bekkur hefur einn fulltrúa í ráðinu og annan til vara. Gætt er að kynjahlutfalli þegar skipað er í ráðið. Ráðið fundar 5 sinnum yfir vetrartímann og fer yfir ýmsa þætti sem við koma skólabrag. Nemendafulltrúaráð fær kynningu á niðurstöðum úr „Skólapúlsinum" og kemur með tillögur að aðgerðum í kjölfar þeirra. Ráðið kemur með hugmyndir að því hvað verður gert á vinabekkjadögum. Einnig kemur ráðið með hugmyndir fyrir friðargönguna. Náms- og starfsráðgjafi fundar með ráðinu og sér um að rita fundargerðir og vera tengiliður við skólastjórnendur og kennara en ráðið hefur fengið nafnið „Stuðboltarnir".
Hægt er að skoða fundargerðir Stuðboltana hér