Fjölbreytt hreyfing, fyrirlestrar og heilsuefling fyrir alla aldurshópa í Heilsu- og forvarnarviku 3.-9. okt.

  • Fréttir
  • 28. september 2016

Dagana 3.-9. október n.k. verður Heilsu- og forvarnarvika í Grindavík. Hún kemur í stað Hreyfi-vikunnar sem nú hefur verið færð fram til vorsins. Tilgangur Heilsu- og forvarnarvikunnar er að hvetja bæjarbúa til að huga að heilsu sinni með markvissri hreyfingu, sýna fram á forvarnargildi hreyfingar og heilbrigðs lífernis og gefa aðilum sem stunda heilsueflingu færi á að kynna starfsemi sína. Markmiðinu skal m.a. ná með samstarfi fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka, íþróttafélaga og einstaklinga sem starfa á þessu sviði. Dagskránni verður dreift í öll hús á morgun og er hægt að nálgast á heimasíðunni (sjá neðst í þessari frétt). 

Biðlað hefur verið til allra stofnana, fyrirtækja, félagasamtaka, íþróttafélaga og annarra sem vilja stuðla að bættri heilsu og forvörnum í Grindavík, að taka þátt með einum eða öðrum hætti. Undirtektir hafa verið frábærar og úrvalið er fjölbreytt fyrir alla aldurshópa, allt frá gönguferðum, opnum æfingum, fyrirlestrum og kynningum upp í heilsufarsmælingar og ýmsa skemmtilega viðburði.

Við hvetjum Grindvíkinga til þess að kynna sér dagskrána og taka þátt í auglýstum viðburðum. Dagskrána verður einnig hægt að nálgast á heimasíðu Grindavíkurbæjar. Dagskráin teygir sig reyndar í báða enda svo fylgist vel með!

Frístunda- og menningarsvið Grindavíkurbæjar

  Dagskrá: Heilsu- og forvarnarvika 3.-9. okt. 2016

 

 

 


 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir