Helgi Jónas gefur út sína ađra bók

  • Fréttir
  • 28. september 2016

Út er komin bókin „Little Lessons on HIIT" eftir líkamsræktarfrömuðinn og Grindvíkinginn Helga Jónas Guðfinnsson. Þetta er önnur bókin sem Helgi gefur út en sú fyrri fjallaði einnig um líkamsrækt og var um tíma metsölubók á Amazon. Bókin kom út á rafrænu formi á Amazon í gær en von er á prentaðri útgáfu á næstunni. 

Helgi Jónas greindi frá því sjálfur á Facebook að hann hefði ákveðið að drífa í útgáfu 27. september þar sem að eiginkona hans, Arnfríður Kristinsdóttir, fagnaði 40 ára afmæli í gær. Í bókinni eru einmitt 40 æfingar en þessi tvenna var þó alger tilviljun. Helgi skilaði inn 36 æfingum til ritstjórans síns sem lagði hart að honum að bæta við 4 enn og útkoman er 40 æfingar á 40 ára afmælinu.

Við óskum Helga að sjálfsögðu til hamingju með bókina og hvetjum alla þá sem hafa áhuga á líkamsrækt að kynna sér efni hennar.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!