Grindavíkurbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í starf sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu, reynslu og áhuga á íþrótta- og frístundamálum, forvörnum og menningu. Leitum að aðila sem hefur ríka skipulagshæfni og getu til að stjórna breytingum ásamt hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á einfaldan hátt. Karlar jafnt sem konur eru hvött til þess að sækja um starfið.
Starfssvið
• Yfirumsjón og ábyrgð á íþrótta-, frístunda- og menningarmálum
• Gerð starfs- og fjárhagsáætlana sviðsins
• Ráðgjöf, undirbúningur og framlagning mála fyrir frístunda og menningarnefnd og bæjarráð ásamt eftirfylgni mála
• Þjónusta við íbúa á sviði íþrótta-, frístunda-, forvarna- og menningarmála
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af stjórnun verkefna og rekstri
• Reynsla af stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana
• Reynsla og þekking á stjórnsýslu og málefnum sveitarfélaga er æskileg
• Hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að stjórna breytingum
• Sjálfstæði, frumkvæði og rík skipulagshæfni
• Góð kunnátta í íslensku í ræðu og riti
Nánari upplýsingar um starfið veitir Róbert Ragnarsson bæjarstjóri í síma 420 1100 og robert@grindavik.is Umsóknarfrestur er til og með 3. október nk. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál, en listi umsækjenda verður opinber að umsóknarfresti liðnum. Umsókn um starf þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar.