Vel mannađ Útsvarsliđ í vetur

  • Fréttir
  • 14. september 2016

Útsvarlið Grindavíkur veturinn 2016-2017 kom saman til æfinga í gærkvöldi en fyrsta viðureign liðsins verður föstudaginn 4. nóvember þar sem við mætum liði Borgarbyggðar. Það er valinn maður í hverju rúmi í liðinu í ár en fjölmargar ábendingar um frambærilega keppendur bárust í ár. Liðið í ár skipa:

Agnar Steinarsson - Agnar er þekkt stærð í Útsvarinu en hann var í meistaraliði Grindavíkur 2012 og er hokinn af reynslu og þungavigtarmaður í faginu. Agnar er líffræðingur að mennt og starfar hjá Hafró hér í Grindavík

Andrea Ævarsdóttir - Andrea Ævarsdóttir - Andrea er annar af nýliðunum í hópnum í ár en þó enginn nýliði þegar kemur að fróðleik, enda safnstjóri Bókasafns Grindavíkur og maður kemur sannarlega ekki að tómum kofunum hjá henni þegar kemur að spurningaleikjum. Andrea er bóksafns- og upplýsingafræðingur.

Eggert Sólberg Jónsson - Það verður mikil pressa á Eggerti í fyrstu viðureigninni en Eggert er fæddur og uppalinn í Borgarnesi og mun því væntanlega leggja allt kapp á að klekkja á sínum gömlu sveitungum. Eggert er verkefnastjóri Reykjanes Geopark en hann er þjóðfræðingur að mennt sem sumir segja að sé hinn fullkomni undirbúningur fyrir Útsvarið.

Símavinurinn í ár er heldur ekkert blávatn í bransanum en það er sjálfur Útsvarsmeistarinn Daníel Pálmason.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir