null
Fundur haldinn 13. september 2016 kl. 18:00 á Papa‘s pizza.
Mættir:
• Kolbrún Dögg Ólafsdóttir
• Elsa Katrín Eiríksdóttir, formaður
• Nökkvi Már Nökkvason
• Karín Óla Eiríksdóttir
• Veigar Gauti Bjarkason
• Sigríður Etna Marinósdóttir
• Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri
1. Staðan á skipan í stjórn Ungmennaráðs
Aðalmenn:
1. Kolbrún Dögg Ólafsdóttir, aðalmaður til tveggja ára, 16-18 ára
2. Elsa Katrín Eiríksdóttir, aðalmaður til eins árs ára, 16-18 ára
3. Nökkvi Már Nökkvason, aðalmaður til eins árs, 16-18 ára.
4. Karín Óla Eiríksdóttir, aðalmaður til eins árs, 13-16 ára
5. VANTAR (þarf að kjósa nýjan), aðalmaður til tveggja ára, 13-16 ára
6. Ólöf Rún Óladóttir, aðalmaður til eins árs, fulltrúi nemenda- og Þrumuráðs
7. Veigar Gauti Bjarkason, aðalmaður til eins árs, fulltrúi nemenda- og Þrumuráðs
Varamenn (til eins árs):
1. Belinda Björg Jónsdóttir, varamaður, 13-16 ára
2. VANTAR (nemenda/þrumuráð þarf að tilnefna nýjan), varamaður, nemenda- og Þrumuráðs
3. Ólafur Þór Unnarsson: Varamaður 16-18 ára
Sigríður Etna tekur að sér að auglýsa eftir aðalmanni í grunnskólanum. Einnig þarf nemenda- og Þrumuráð að tilnefna nýjan varamann.
2. Ungmennagarður - Staðan
Gengið var frá strandblakvellinum í sumar og kósýrólunni. Einnig þurfti að lagfæra körfur, heildarkostnaður var líklega um 3,6 m.kr. en á fjárhagsáætlun var heimild fyrir 4 m.kr.
Næsta á dagskrá er körfuboltatrampólínvöllurinn. Þorsteinn hefur verið í samstarfi við Hrafn hjá fyrirtækinu Krumma. Hrafn er nú staddur á sýningu í Þýskalandi þar sem hann er að þróa þetta áfram. Hér að neðan fylgir fyrsta teikning.
Við gerð fjárhagsáætlunar í haust verður óskað eftir fjármagni til að kaupa körfuboltatrampólínvöll, áætlaður kostnaður er á bilinu 15-20 milljónir króna.
Ráðið er samála um að vel hafi tekist til með ungmennagarðinn fram að þessu og ætlar að færa rök fyrir því hvers vegna Grindavíkurbær ætti að styðja við bakið á körfutrampólínvelli og hvað bæjarfélagið græðir á því.
3. Fræðsludagur ungmennaráða á Suðunesjum
Sameiginlegur fræðsludagur ungmennaráða og nemenda/félagsmiðstöðvarráða verður haldinn 5. Október n.k. Drög að dagskrá:
Kl. 11.10 Mæting í Fjörheima
Kl. 11.15 Hópefli.
Kl. 11.40 Skipting
Kl. 11.45 Fyrirlestrar
Kl. 12.15 Grill hefst
Kl. 12.40 Fyrirlestrar byrja aftur
Kl. 13.10 Skipting á milli fyrirlestra
Kl. 13.40 Fyrirlestrum lokið
Kl. 13.40 Fræðsludegi lokið.
Ungmennaráð og nemenda- og Þrumuráð fer á fræðsludaginn, sækja þarf um leyfi í skólum fyrir nemendur.
4. Landsþing Ungs fólks 2. okt. n.k.
Er hluti af landsmótinu, stefnt að því að nemenda/þrumuráðið taki þátt í því.
5. Forvarnar- og heilsuvika
Verður haldin 3.-9. október n.k. Ungmennaráð ætlar að bjóða upp á viðburð, jafnvel tengt ungmennagarðinum ef veður leyfir.
6. Bjóða bæjarstjórn á fund
Verður nánar ákveðið á næsta fundi en reiknað með að bjóða bæjarstjórn í kringum mánaðarmótin október/nóvember.
7. Aðrar áskoranir ungmennaráðs - staðan
• Samgöngur milli Grindavíkur og Reykjanesbæjar fyrir nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja: Búið að breyta tímasetningu sem er mun hentugri en áður.
• Bjóða upp á Dale Carnegie námskeið: Verður unnið í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar í haust.
8. Önnur mál
Rætt m.a. um niðurgreiðslu á rútukortum fyrir nemendur FS. Ákveðið að ræða m.a. við bæjarstjórn.
Atkvæðagreiðsla fer fram á Facebook hvenær næsti fundur ungmennaráðs fer fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.