55. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 5. september 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Klara Halldórsdóttir formaður, Ámundínus Örn Öfjörð aðalmaður, Ómar Örn Sævarsson aðalmaður, Guðmundur Grétar Karlsson aðalmaður, Sigurpáll Jóhannsson varamaður, Eggert Sólberg Jónsson áheyrnarfulltrúi, Fríða Egilsdóttir leikskólastjóri og Hulda Jóhannsdóttir leikskólastjóri.
Fundargerð ritaði: Ingibjörg María Guðmundsdóttir, yfirsálfræðingur.
Dagskrá:
1. 1604088 - Leikskólinn Krókur: Skóladagatal 2016-2017
Hulda Jóhannsdóttir leikskólastjóri lagði fram beiðni um að færa starfsdag skólans frá 22. september til 10. nóvember vegna þátttöku í þróunarverkefni á vegum Nordplus. Fræðslunefnd samþykkir breytingu á skóladagatali skólans.
2. 1608144 - Leikskólinn Krókur: Starfsáætlun 2016-2017
Hulda Jóhannsdóttir leikskólastjóri lagði fram starfsáætlun Heilsuleikskólans Króks fyrir skólaárið 2016-2017 ásamt umsögn foreldraráðs. Fræðslunefnd staðfestir starfsáætlunina.
3. 1608134 - Leikskólinn Laut: Ársskýrsla 2015-2016
Fríða Egilsdóttir lagði fram ársskýrslu Lautar fyrir skólaárið 2015-2016 þar sem gerð er grein fyrir framgangi skólastarfsins sl. skólaár, ásamt skýrslu um innra mat skólans.
4. 1511033 - Skólastarf: Ytra mat sveitarfélags á skólahaldi 2015 - 2016
Lögð fram samantekt á ytra mati leikskólanna tveggja. Fram koma í samantektinni niðurstöður úr Skólavoginni fyrir Laut og niðurstöður úr foreldrakönnun Skólapúlsins fyrir báða leikskóla. Samantektin fer á heimasíðu Grindavíkurbæjar.
5. 1608043 - Skólaþjónusta: starfsáætlun 2016-2017
Ingibjörg María Guðmundsdóttir lagði fram starfsáætlun fyrir skólaþjónustu Grindavíkurbæjar ásamt yfirliti yfir verkefni vetrarins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:42.