Grindavíkurbær auglýsir lausa stöðu launafulltrúi á bæjarskrifstofu. Um er að ræða 100% stöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Launafærslur og launakeyrslur
• Greiðsla launa og launatengdra gjalda
• Utanumhald viðveruskráningar
• Gerð launaáætlana
• Ráðgjöf til forstöðumanna stofnana sveitarfélagsins um kjarasamninga, gerð ráðningarsamninga og önnur almenn atriði auk leiðbeininga til starfsmanna um kjaramál
• Ráðgjöf og aðstoð við starfsmannastjóra hvað varðar mannauðs- og kjaramál
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af færslu launa og vinnu með kjarasamninga
• Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi á teymisvinnu
Umsókn ásamt ferilskrá skal berast eigi síðar en 23. september 2016 á bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62, 240 Grindavík eða á netfangið jont@grindavik.is. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi stéttafélags viðkomandi og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Jafnt konur sem karlar eru hvött til þess að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs (netfang: jont@grindavik.is - sími: 420-1100) eða Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri (netfang robert@grindavik.is)