Námskeiðið Klókir litlir krakkar er meðferð fyrir börn á aldrinum 3-7 ára sem eru í áhættuhópi fyrir kvíðaröskun. Námskeiðið miðar að því að fræða foreldra um eðli kvíða og kenna þeim leiðir til að takast á við kvíðahegðun barna sinna og auka sjálfstraust þeirra. Vonast er til að með slíku námskeiði verði hægt að minnka kvíðahegðun barna og í sumum tilfellum koma í veg fyrir að börn þrói með sér kvíðaröskun.
Foreldrar verða beðnir um að svara nokkrum spurningalistum fyrir og eftir námskeið til að meta árangur. Leiðbeinendur námskeiðanna eru sálfræðingar sem eru sérfróðir um kvíðaraskanir barna og hafa staðgóða reynslu af vinnu með foreldrum og börnum.
Námskeiðsgjaldið er 12.500 krónur fyrir foreldra hvers barns (sama gjald fyrir einstakling eða foreldrapar).
Fyrirkomulag
Hvert námskeið er 12 klukkustundir og skiptist í 6 skipti, 2 klst. í senn. Námskeiðið verður haldið í Grindavík kl. 19:30 - 21:30 (mögulega verður bætt við öðru námskeiði kl. 16:30-18:30 ef þörf reynist). Fyrstu 4 skiptin eru vikulega, síðan verður frí milli 4. og 5. tíma og frí milli 5. og 6. tíma (sjá dagskrá hér að neðan). Rík áhersla er lögð á umræður og virka þátttöku foreldra til að tryggja að efnið nýtist hverjum og einum sem best. Milli tíma vinna foreldrar heimaverkefni sem snúa að því að vinna með kvíðaeinkenni barna sinna.
Mikilvægt er að foreldrar geti mætt í alla tímana og mælt er með því að báðir foreldrar sæki námskeiðið.
Skráning er hafin og lýkur 12. september.
Skráning fer fram á hannad@grindavik.is
Foreldrar verða síðar að staðfesta skráningu með því að fylla út spurningalista í byrjun sept og með því að greiða fyrir námskeiðið fyrir 20. september.
Dagskrá
Tími 1: | Fimmtudaginn 22. september |
Tími 2: | Fimmtudaginn 29. september |
Tími 3: | Fimmtudaginn 6. október |
Tími 4: | Fimmtudaginn 13. október |
FRÍ | |
Tími 5: | Fimmtudaginn 24. október |
FRÍ | |
Tími 6: | Fimmtudaginn 11. nóvember |
Hanna Dorothéa Bizouerne og Ingibjörg María Guðmundsdóttir sálfræðingar á Skólaskrifstofu Grindvíkur