Örvar Ingi Jóhannesson hefur tekið til starfa sem píanókennari við Tónlistarskólann í Grindavík.
Örvar lauk burtfararprófi frá Nýja Tónlistarskólanum árið 2006. Hann nam um skeið hjá professor Carola Grindea og hefur sótt masterclassa hjá ýmsum píanóleikurum. Örvar hefur starfað í nokkrum tónlistarskólum en þó lengst af í Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar ásamt því að leika undir með söngnemendum. Auk kennslu hefur Örvar gefið út kennslubækur fyrir píanónemendur á öllum aldri.
Við bjóðum Örvar hjartanlega velkominn til okkar og hlökkum mikið til samstarfsins á komandi vetri.