null
464. fundur Bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í Gjánni, fundarsla nýja íþróttamannvirkis, þriðjudaginn 30. ágúst 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Kristín María Birgisdóttir forseti, Hjálmar Hallgrímsson 1. varaforseti, Guðmundur L. Pálsson Bæjarfulltrúi, Marta Sigurðardóttir 2. varaforseti, Jóna Rut Jónsdóttir Bæjarfulltrúi, Ásrún Helga Kristinsdóttir Bæjarfulltrúi, Hjörtur Waltersson varamaður, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Forseti óskar eftir að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum.
Félagsmálanefnd og skipulagsnefnd: breyting á varafulltrúum B-lista
Jafnframt óskar forseti eftir því að málið fjárhagsáætlun Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fyrir árið 2016 verði fellt út af dagskrá. Málið var sett á dagskrá fyrir mistök og er afgreitt.
Samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
1. 1501193 - Deiliskipulag: Víðihlíð og nágrenni
Til máls tóku: Kristín María, Ármann og Guðmundur.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fylgdi málinu eftir.
Bæjarstjórn samþykkti á 406. fundi, þann 26. apríl 2016, tillögu skipulagsnefndar að deiliskipulagi Víðihlíðar og nágrennis.
Skipulagsstofnun gerði með bréfi dagsett 9. júní 2016 athugasemd við að ekki hafi verið gert ráð fyrir lóðum undir hluta af mannvirkjum á svæðinu. Sviðstjóri hefur lagt fram endurbætta útgáfa af tillögu að deiliskipulagi vegna svæðisins þar sem búið er að bæta inn lóðum. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og sviðstjóra falið hún til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samhljóða.
2. 1606076 - Hafnargata 6: umsókn um byggingarleyfi
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fylgdi málinu eftir.
Til máls tóku: Kristín María og Ármann.
Bergbúar ehf. óska eftir byggingarleyfi fyrir fjórum gistiherbergjum við Hafnargötu 6. Erindinu fylgja teikningar unnar af Stefáni Hallssyni. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja byggingaráformin. Byggingarleyfi verður gefið út þegar ákvæðum 3 mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 hafa verið uppfyllt.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samhljóða.
3. 1602168 - Umsókn um byggingarleyfi: fjarskiptamastur við Víkurbraut 25.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fylgdi málinu eftir.
Til máls tóku: Kristín María og Ármann.
Míla ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir uppsetningu á 18 m fjarskiptamastri við Víkurbraut 25. Erindinu fylgja teikningar unnar af Úti-inni arkitektum. Fyrirhuguð framkvæmd hefur verið grenndarkynnt. Á grenndarkynningartíma barst undirskriftalisti frá 33 aðilum í nágrenni Víkurbrautar 25. Með undirskriftalistanum er fyrirhugaðri framkvæmd mótmælt. Í ljósi mótmæla við framkvæmdina leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að erindinu verði hafnað.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samhljóða.
4. 1608072 - Umsókn um byggingarleyfi: Hafnargata 7 innra skipulag og lóð.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fylgdi málinu eftir.
Til máls tóku: Kristín María, Ármann, Ásrún, Marta, Róbert og Guðmundur.
Olíuverslun Íslands ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir breytingu á innra skipulagi, uppsetningu á girtu vinnusvæði og að koma fyrir gám á lóðinni. Erindinu fylgja teikningar unnar af ASK arkitektum dagsettar 15.07.2012. Nú þegar hefur verið sett upp girðing og gámur á svæðið. Þær framkvæmdir samræmast ekki svipmóti svæðisins. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja erindið með fyrirvara um að girðing verði skermuð og gámur verði staðsettur innan girðingar. Byggingarleyfi verður gefið út þegar kröfum um svipmót er virt og ákvæði 3 mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 hafa verið uppfyllt.
Fulltrúar B-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Við undirrituð fulltrúar B-lista teljum að port sem hefur að geyma olíutunnur o.fl. sem tengist þessari starfsemi
eigi ekki heima á þessu svæði.
Ástæður þessa eru meðal annars nálægð við íbúðarhús og ásýnd fyrirhugaðs útivistarsvæðis, en stefnt er að því að
byggja upp á svæðinu Sjómannagarð Grindavíkur.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með fimm atkvæðum, gegn 2 atkvæðum B-lista.
5. 1608063 - Umsókn um byggingarleyfi: Norðurljósavegur 1.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fylgdi málinu eftir.
Til máls tóku: Kristín María, Ármann og Guðmundur.
KE64 ehf. óskar eftir stækkun um 10 herbergi á hótel Northern Light Inn við Norðurljósaveg 1 í Svartsengi. Erindinu fylgja teikningar unnar af GÁG ehf verk - og tækniráðgjöf og RS hönnun slf.dagsettar 16.06.2016. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt.
Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar ákvæði 3 mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 hafa verið uppfyllt
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samhljóða.
6. 1608138 - Félagsmálanefnd og skipulagsnefnd: breyting á varafulltrúum B-lista
Til máls tóku: Kristín María og Ásrún.
Fulltrúar B-lista leggja fram tillögu að breytingu á varafulltrúum í félagsmálanefnd og skipulagsnefnd.
Anton Guðmundsson verður varamaður í skipulagsnefnd í stað Björgvins Björgvinssonar.
Herdís Gunnlaugsdóttir verður varamaður í félagsmálanefnd í stað Lindu Sylvíu Hallgrímsdóttur.
Samþykkt samhljóða.
7. 1605012F - Frístunda- og menningarnefnd - 54
Til máls tóku: Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
8. 1602002 - Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2016
Allir tóku til máls.
Fundargerð 705. fundar er lögð fram til kynningar.
9. 1606003F - Félagsmálanefnd - 67
Til máls tók: Kristín María.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
10. 1607005F - Félagsmálanefnd - 68
Til máls tóku: Kristín María, Ásrún Jóna Rut og Guðmundur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
11. 1608007F - Félagsmálanefnd - 69
Til máls tóku: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
12. 1606005F - Skipulagsnefnd - 19
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
13. 1608005F - Skipulagsnefnd - 20
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
14. 1608003F - Fræðslunefnd - 54
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
15. 1608002F - Umhverfis- og ferðamálanefnd - 15
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
16. 1606010F - Hafnarstjórn Grindavíkur - 444
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
17. 1608006F - Bæjarráð Grindavíkur - 1417
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
18. 1608001F - Bæjarráð Grindavíkur - 1416
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
19. 1607007F - Bæjarráð Grindavíkur - 1415
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
20. 1607004F - Bæjarráð Grindavíkur - 1414
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
21. 1606006F - Bæjarráð Grindavíkur - 1413
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
22. 1606004F - Bæjarráð Grindavíkur - 1412
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
23. 1606002F - Bæjarráð Grindavíkur - 1411
Allir tóku til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45.