Félagsmiðstöðin Þruman fagnar 30 ára afmæli í haust og verður haldið upp á það með pompi í pragt á félagsmiðstöðvardaginn 9. nóvember n.k. Nemenda- og Þrumuráð mun halda utan um skipulagninguna í samstarfi við starfsfólk Þrumunnar. Nánar auglýst síðar. Jóhann Árni Ólafsson frístundaleiðbeinandi og starfsmaður Þrumunnar undanfarin ár verður þar áfram. Hann mun hins vegar minnka við sig starfshlutfall í Þrumunni því hann verður einnig í íþróttakennslu í vetur. Við hlið Jóhanns Árna í Þrumunni í vetur hefur Sigríður Etna Marinósdóttir verið ráðin en hún er menntuð tómstunda- og félagsmálafræðingur. Sigríður Etna hefur starfað mikið í félagsmiðstöðvum í gegnum tíðina. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa.
Dagskrá Þrumunnar í vetur fyrir unglingastig og miðstig verður unnin í samráði við nemenda- og Þrumuráð. Hún verður gefin út um mánaðarmótin og hefst skipulagt tómstundastarf í kvölddagskrá Þrumunnar 5. september. Nánar auglýst síðar. Við byrjum úti í blíðviðrinu.
Að vanda verður Þruman opin á skólatíma á daginn fyrir nemendur unglingastigs (7.-10. bekk).
Nemendur á miðstigi fá að vera í Þrumunni einar frímínútur á viku frá 9:40-10:00. 4. bekkur er á þriðjudögum, 5. bekkur á föstudögum og 6. bekkur er á fimmtudögum.
Stórir viðburðir fram að áramótum (drög):
Opnun Þrumunnar 5. sept.
Opnunarball 23. sept.
Starfsdagar Samfés 15.-16. sept. (eingöngu starfsfólk) Landsmót Samfés 9.-11. okt. í Kópavogi
Halloweenball Félagsmiðstöðvardagurinn mið. 9. nóv. - 30 ára afmæli Þrumunnar
Rímnaflæði fös. 18. nóv.
Hæfileikakeppni Samsuð 2. des.
Jólaball 16. des.
Sigríður Etna.