Kristín bókasafns- og upplýsingafrćđingur ráđin á bókasafniđ

  • Bókasafnsfréttir
  • 26. ágúst 2016

Kristín Konráðsdóttir hefur verið ráðin í eins árs afleysingu á Bókasafn Grindavíkur. Hún leysir af Viktóríu Róbertsdóttur sem er í leyfi en hún kennir við Grunnskóla Grindavíkur í vetur. Kristín er 42 ára og með BA-próf í bókasafns- og upplýsingafræði úr Háskóla Íslands. Hún hefur mikla reynslu af bókasafni, bæði hjá grunnskólum og fjölbrautaskólum og hefur séð um safnkennslu. Hún hefur einnig starfað sem skjalastjóri. Hún kemur úr Kópavogi. Kristín mun sjá um almenn bókasafnsstörf og um safnkennslu. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa á bókasafnið.

 

Mynd: Andrea forstöðumaður bókasafnsins og Kristín Konráðsdóttir.

 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir