Kæru stuðningsmenn Grindavíkur! Strákarnir okkar spila einn mikilvægasta leik sinn í mörg ár þegar nágrannar okkar í Keflavík koma í heimsókn á Grindavíkurvöll á fimmtudaginn kl. 19:15. Þetta er risaslagur þar sem barist
er um sæti í Pepsideild karla.
Við hvetjum Grindvíkinga til þess að mæta tímalega í gulu á Grindavíkurvöll og styðja strákana okkar til sigurs.
ÁFRAM GRINDAVÍK!