Umhverfisverđlaun 2016 - síđasti séns ađ skila inn ábendingum

  • Fréttir
  • 9. ágúst 2016

Líkt og undanfarin ár verða Umhverfisviðurkenningar Grindavíkurbæjar veittar núna í lok ágúst. Það er Umhverfis- og ferðamálanefnd sem hefur umsjón með þessu verkefni en saga þess nær aftur til ársins 1991. Nefndin óskar eftir ábendingum frá íbúum bæjarins um fallega jafnt sem áhugaverða garða, um fallega og vel heppnaða endurbyggingu á gömlu húsi og einnig ábendingum um snyrtileg fyrirtæki. Hægt er að skila inn ábendingum út þessa viku.

Þá verða einnig veitt verðlaun fyrir fallegasta tréð í samvinnu við Skógræktarfélag Grindavíkur og er einnig óskað eftir tilnefningum í þeim flokki.

Hægt er að koma ábendingum á framfæri með því að senda upplýsingar á umsjónarmann opinna og grænna svæða, Hjalta Guðmundsson - bassi@grindavik.is, á upplýsingafulltrúa Grindavíkurbæjar, Siggeir F. Ævarsson - siggeir@grindavik.is, eða með því að hringja í síma 420 1100. Einnig er tekið við tilnefningum í gegnum Facebook-síðu bæjarins.

Lesa má um umhverfisverðlaunin 2015 hér.

Listi yfir verðlaunahafa frá upphafi til 2014 hérna

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!